top of page

NOTENDAVIÐBRÖGÐ

HAFNARFJARÐARBÆR:

„Hafnarfjarðarbær hefur markað sér skýra stefnu í umhverfismálum og viljum við forðast nagladekkjanotkun og stuðla þannig að minni svifryksmengun.  Eftir góða reynslau af Green Diamond harðkornadekkjunum frá haustinu 2012 munum við áfram velja þau umfram önnur dekk.“

​

GUNNAR GUÐNASON, UMSJÓNARMAÐUR TÆKJA

ÍSTAK:

„Stjórnendur hjá Ístak láta sig öryggis- og umhverfismál miklu varða.  Það er því sjálfsögð og auðveld ákvörðun að velja Green Diamond harðkornadekk undir bifreiðar okkar.  Góð reynsla og almenn ánægja yfir 30 starfsmanna sem aka reglulega á dekkjunum, hlýtur að segja allt um ágæti Green Diamond dekkjanna.“

​

SIGURÐUR SIGURÐSSON, REKSTRARSTJÓRI ÞJÓNUSTUDEILAR

BJÖRGUNARFÉLAGIÐ EYVINDUR Á FLÚÐUM:

„Við höfum nú notað Green Diamond harðkornadekkin undir forgangsbifreið okkar í sjö ár.  Dekkin standast allar okkar kröfur s.s. um öryggi, mýkt og endingu.  Þau eru hljóðlát og ekki sjálfgefið að dekk með þessa eiginleika séu á svo hagstæðu verði.  Auk þess eru þau umhverfisvæn.“

​

BORGÞÓR VIGNISSON, FORMAÐUR

ÍSAVÍA:

„Í stefnumiði Ísavía er m.a. lögð áhersla á að lágmarka áhættu, stuðla að auknu öryggi og hafa umhverfisáhrif í öndvegi.  Það er því í góðu samræmi við stefnumið Ísavía að hafa bifreiðar okkar á Green Diamond harðkornadekkjum.  Góð reynsla og hagstætt verð styður enn frekar þessa ákvörðun.“

​

VILHJÁLMUR KARL KARLSSON, SÉRFRÆÐFRÆÐINGUR / INNKAUPADEILD

GARÐABÆR:

Ég er búinn að nota Green Diamond harðkornadekk í þrjú ár undir pickup bíl.  Þetta eru ein þau bestu dekk sem ég hef notað.  Bíllinn er rásfastari og um leið mýkri í akstri á Green Diamond dekkjunum en ég hef átt að venjast á öðrum dekkjum.  Ég mæli eindregið með Green Diamond harðkornadekkjunum.

​

SIGURÐUR HAFLIÐASON, FORSTÖÐUMAÐUR ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR

HALLGRÍMUR HELGASON:

"Þetta var eins og að kaupa góða kuldaskó á bílinn. Maður finnur hreinlega hvað honum líður miklu betur á þessum dekkjum. Þá spillir ekki að fá að aka um bæinn með góða umhverfissamvisku. Og maður spyr sig: Hversvegna í ósköpunum var ekki byrjað á þessu fyrir löngu síðan, að endurvinna allt þetta gúmmí og gera ný dekk úr gömlum? Þá er ég ekki frá því að þegar maður er á grænum dekkjum þá lendi maður oftar á grænu ljósi."

​

RITHÖFUNDUR OG MYNDLISTARMAÐUR

bottom of page